*Velkomin í heimsókn*
|
| Ég heiti Kolfinna Dröfn |
|
Ég byrja á foreldrum mínum: Þau heita Heba Agneta Stefánsdóttir 02.07'79 og Helgi Reynir Guðmundsson 04.07'80 Svo er það hann stóri bróðir minn Stefán Bjarki Sturluson sem er 14 ára og er fæddur 31.07'95 Svo er það ég, aðal skvísan: Það var árla morguns fimmtudaginn 9.september 2004 sem mamma og pabbi voru mætt upp á fæðingardeild Landspítalans, nánar tiltekið klukkan 05:50 þar sem amma Jóhanna og Ólafía ljósmóðir og ömmusystir mín biðu eftir okkur en pabbi hafði vakið þær hálftíma áður þegar mamma var farin að finna fyrir verkjum. Ég var svo fædd klukkan 06:55 þessi líka hrausta stelpa með mikið dökkbrúnt hár og dökkblá augu og mældist ég 50 cm og heil 3650 grömm sem gerir 14,5 merkur. ![]()
Lykilorðið í albúmið er nafnið á götunni sem við fjölskyldan búum í. Skrifið orðið í einni runu, allt með litlum alþjóðlegum stöfum. Þið sem áttið ykkur ekki, sendið mömmu póst á heba.agneta.stefansdottir@reykjavik.is og hún svara ykkur um hæl eða skiljið eftir skilaboð og mail í gestabókinni. Munið nú svo að kvitta fyrir komuna!
|
|
|
MEYJAN 23. ágúst - 22. september Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
NÖFNIN MÍN: Kolfinna Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Kol" sem merkir dökkt yfirbragð og viðliðnum "finna" sem merkir kona. Dröfn Nafn þetta er fengið úr fornsögunum. Ein af dætrum Ægis sjávarkonungs og Ránar konu hans hét einmitt Dröfn og merkir nafnið alda, - bára. BARNALANDSBÖRN
.:Bóas Orri:. .:Anton Gamalíel:. .:Tómas Elí:. .:Birta Rós og Ása Katrín:. .:Embla Rún og Una Dögg:. .:Auður María og Anna Kolbrún Lárusardætur:. .:Ísold Ylfa:. .:Bjarney Halla:. .:Arnar Þór:. .:Hákon Hinrik:. .:Þórkatla Þyrí:. .:Matthildur Helga og Skírnir Valur:. .:Ólafur Ingi og Almar Kári:. .:Viðar, Þorgils og Hrafnhildur Steinunn:. .:Ísak Darri og Ísafold:. .:Þorgerður Alma:. .:Breki Þór:. .:Gabríel Ómar:. .:Mikael Jósef:. .:Silja Björg:. .:Bergur Breki og Sveinn Þór:. .:Heiðrún Björg:. .:Sigríður Björg:.
Takk fyrir komuna og munið eftir gestabókinni kæru gestir! |
| Þú ert gestur nr. 63864 |